Snjóflóð
Að verða fyrir snjóflóði
Sá sem lendir í snjóflóði skal:
Reyna að synda
Reyna eftir fremsta megni að halda sér upp úr flóðinu með því að taka sundtökin.
Ef borist er stjórnlaust með snjóflóðinu, skal halda fyrir vit sín og koma þannig í veg fyrir að þau fyllist af snjó.
Snjóflóðið stöðvast
Þegar snjóflóðið tekur að stöðvast skal hreyfa sig eftir fremsta megni til að búa til rými til öndunar og hreyfingar.
Haltu rónni
Haltu ró þinni. Ekki reyna að kalla á hjálp, fyrr en heyrist vel í leitamönnum. Mundu að þú heyrir betur í leitarmönnum en
þeir í þér.
Trú um björgun
Trúin um að vera bjargað auka lífslíkur til muna.
Fárviðri & SjávarflóðEf Veðurstofa Íslands varar við veðri, skal taka það alvarlega.
Sjá veðurspá á heimasíðu Veðurstofu Íslands
Dveljið innandyra Dveljið innandyra á meðan fárviðri geysar og þá hlémegin í íbúðinni.
Skólar, ferðalög og mannamót. Aflýsið ferðalögum og mannamótum. Sendið ekki börn í skóla.
Fréttir og tilkynningar
Fylgist með veðurfréttum og tilkynningum í útvarpi og sjónvarpi. Sjá senditíðnir Ríkisútvarpsins.
Senditíðnir Ríkisútvarpsins
Athugið: Ef FM-sendigar nást ekki,
munið þá langbylgju Ríkisútvarpsins:
Eiðar: LW 207 og Gufuskálar: LW 189





