Nú er veturinn farin að minna á sig, svona var um að litast í Böggvisstaðarfjalli í gærdag.
Í nótt hafði bæst meira í snjóinn og skafið talsvert í brúnir og fjallshlíðar. Nú þegar Hvíta gullið er
farið að láta sjá sig fer að hlaupa spenningur í sleða menn og fleiri, og eru sleðamenn sveitarinnar farnir á fullt í að yfirfara
sleðana og gera það sem þarf fyrir komandi vetur.