Vélsleðamaður 1
Almennt - þriðjudagur 01.desember 2009 - Kári Brynjólfsson
Næstkomandi föstudag 4. desember verður haldið námskeið á Akureyri í húsnæði Súlna. Allir sleðamenn sem ekki eru búnir að sækja námskeiðið ættu að láta sjá sig á föstudaginn kl 20:00 í Súlnahúsinu. Á námskeiðinu er farið yfir marga þætti t.d ofkælingu, snjóflóða leit og mat á snjóflóðum og margt fleira. námskeiðið tekur aðeins eina kvöldstund eða frá 20:00-23:00 Skráning fer fram á landsbjorg.is eða í síma 5705900 hjá Landsbjörgu.



