Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Útkallsæfing

Þann 19. Nóvember hélt Björgunarsveitin Dalvík viðamikla útkallsæfingu og var sett á svið vélsleðaslys í Böggvistaðafjalli þar sem tveir menn áttu að vera slasaðir, aðstæður í fjallinum voru fínar til æfinga snjómugga, kalt og kolniðamyrkur. Björgunarsveitinn Dalvík var svo kölluð út sem og áfallahjálparteymi Slysavarnardeildar Kvenna á Dalvík og var frekar vel mætt að hálfu beggja deilda. þáttekenndur voru nokkuð fljótir að koma sér í hús og græja allann nauðsýnlegan búnað. Fljótlega fengu þeir svo nánari staðsetningu á slysinu, GPS punkt þar sem síðast sást til mannana á sleðanum.Mennn fóru þá rösklega úr húsi og á réttann stað. Skipaður vettfangstjóri tók þá strax til við að skipuleggja leit, fundust mennirnir stuttu síðar alvarlega slasaðir, hafist var handa strax þá við að koma mönnunum í börur og inní bílanna og ekið með þá í hús. Æfinginn gekk vel í alla staði og gaman að sjá svona marga mætta sem og marga nýliða.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning