Útkall gulur týnd kona á Reykjaheiði
Almennt - mánudagur 02.ágúst 2010 - Kári Brynjólfsson
Aðfaranótt sunnudags laust eftir klukkan 01:00 var sveitin kölluð út ásamt Björgunarsveitunum Súlum og Tindi, til að leita að konu sem
hafði ekki skilað sér heim.
Ætlaði hún að ganga frá Reykjum í Ólafsfirði yfir Reykjaheiði til Dalvíkur. Björgunarsveitarmennirnir voru í nokkrum
hópum og leituðu svæðið beggja vegna frá. Veður var gott þessa nótt hægviðri, bjart og þoka niður við sjó. Um klukkan
04:00 fundu svo björgunarsveitarmenn ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar konuna heila á húfi.



