Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Útkall gulur týnd kona á Reykjaheiði

Aðfaranótt sunnudags laust eftir klukkan 01:00  var sveitin kölluð út ásamt Björgunarsveitunum Súlum og Tindi, til að leita að konu sem hafði ekki skilað sér heim. 
Ætlaði hún að ganga frá Reykjum í Ólafsfirði yfir Reykjaheiði til Dalvíkur. Björgunarsveitarmennirnir voru í nokkrum hópum og leituðu svæðið beggja vegna frá. Veður var gott þessa nótt hægviðri, bjart og þoka niður við sjó. Um klukkan 04:00 fundu svo björgunarsveitarmenn ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar konuna heila á húfi.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning