Útkall F2 Gulur - Óveðursaðstoð Árskógströnd
Útköll - laugardagur 10.apríl 2010 - Pétur Skarphéðinsson
Um kl 22:00 var sveitin boðuð út, þar sem þakplötur og heyrúllur voru farnar að fjúka yfir þjóðveginn við bæinn Krossa
á milli Akureyrar og Dalvíkur. Loka þurfti veginum meðan björguanrsveitin var að tryggja það sem eftir var af þakinu með spottum og
dráttarvélum. Allt fór þó vel að lokum og ekki varð slys á fólki né dýrum.



