Útkall F2 gulur
Útköll - mánudagur 09.nóvember 2009 - Kári Brynjólfsson
Á áttunda tímanum í gærkvöldi var sveitin kölluð út til leitar að rjúpnaskyttu í Fljótum í Skagafirði.
Hátt í tuttugu björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni frá Björgunarsveitinni Dalvík og voru það bæði göngumenn og stjórnendur. Kvennadeildin lét sig ekki vanta frekar en fyrri daginn, snérist í kringum mannskapinn áður en var farið af stað, og var með bakkelsi og kakó þegar heim var komið. Á hún bestu þakkir fyrir.



