Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Útkall F2-Gulur,Maður slasaður á Hólsdal

Laugardaginn 21.mars barst útkall frá neyðarlínu um að maður hefði slasast á vélsleða inná Hólsdal. Farið var upp á undan á þremur sleðum og svo var snjóbíllinn sendur af stað einnig. Maðurinn hafði komið sér niður úr brekkunni þegar að var komið og sat hann aftaná sleða til móts við snjóbílinn sem sá svo um að skutla manninum niðurá veg þar sem sjúkrabíll beið.

Svo var farið í að bjarga sleðanum. Tók það nokkurn tíma því hann var á erfiðum stað í brekkunni. Allt gekk þetta vel að lokum og menn og tæki skiluðu sér í lagi niður aftur.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning