Svæðisæfing á svæði 11
Almennt - þriðjudagur 17.janúar 2012 - Kári Brynjólfsson
Dalvíkingar ætla að halda svæðisæfingu hér á Dalvík laugardaginn 18. febrúar bæði á landi og sjó.
Á æfingunni verður boðið upp á fjallabjörgunar verkefni, vélsleða verkefni, bíla verkefni, snjóbíla verkefni, báta verkefni og almenn verkefni. Á nógu verður að taka fyrir alla og um að gera að taka daginn frá, mæta með allan flotann og æfa grimmt þennan dag. Verið er að skipuleggja daginn og munum við setja frekari tímasetningar hérna inn á síðuna áður en langt um líður.
Kveðja
Æfingastjórn



