Sunnudagsannríki.

Björgunarsveitin á Dalvík hafði í nógu að snúast á sunnudaginn síðasta. Dagurinn byrjaði formlega um hálf fimm leytið þegar aðstoðarbeiðni frá lögregunni barst okkur um bíl sem hafði farið útaf í múlanum.
Og má segja að dagurinn hafi rétt verið að byrja þá, eftir þetta bárust fjöldi aðstoðarbeiðna vegna fólks sem var í vandræðum bæði bílar sem fylgja þurfti heim eins og bílar sem höfðu farið útaf veginum milli Akureyrar og Dalvíkur, enda ekkert ferðaveður og mjög seinnfarið þar sem erfitt þótti að finna veginn vegna slæms skyggnis.
Auk þess að fá slatta að aðstoðarbeiðnum var ein af árlegum fjáröflunum þennan dag þar sem við tókum okkur til og græjuðum rúmlega þúsund bollur, í kjölfarið á bollubakstri var sveitin svo kölluð út útaf konu og dreng sem týnst höfðu á Langjökli sendum við 8 menn af stað á tveimur bílum og þremur sleðum. Þannig að segja má að við höfum verið að verki á öllum vígstöðum og síðustu menn komu í hús um sex leytið um morguninn. Enn segja má að allt hafi farið vel og við þökkum öllum sem komu að aðgerðum og bollubakstri þennan dag fyrir gríðarlega óeigingjarnt starf.



