Snjóflóð á Ólafsfjarðarvegi
Útköll - laugardagur 25.október 2008 - Pétur Skarphéðinsson
Björgunarsveitin kölluð út vegna snjóflóðs sem fallið hafði á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Tveir bílar höfðu
keyrt inní flóðið og sátu þar fastir. Enginn slasaðist og greiðlega gekk að ná bílunum og fólkinu aftur úr
flóðinu. Veginum var lokað í kjölfarið en átti að opna aftur um kvöldið og þá með auknu eftirliti.



