Snjóflóð 2
Almennt - mánudagur 16.janúar 2012 - Kári Brynjólfsson
Helgina 27-29 janúar verður haldið snjóflóðanámskeið hérna á svæðinu.
Mun þetta að öllum lýkindum byrja í Súlnahúsinu á föstudagskveldinu 27.
kl 20:00 Laugadagur og sunnudagur verða báðir haldnir á Dalvík með bóklegu og verklegu. Þetta námskeið er fyrir alla bæði
þá sem hafa starfað lengi og stutt í björgunarsveit.
Frekari tímasettningar og nánara skipulag kemur hér á síðuna þegar nær dregur. Nú er um að gera að hafa samband við
Kára í síma 8233722 og skrá sig, því það hafa allir gott af því að fara í uppryfjun eða læra eithvað
nýtt.




