Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Sleðafundur

Í gær sunnudaginn 28 febrúar var haldin sleðafundur allra sleðaflokka á svæði 11. Tilgangur með fundinum var að hitta aðra sleðamenn á svæðinu og kynnast betur. Ákveðið var að allar sveitir haldi æfingu fyrir hinar sveitirnar og verður fyrsta æfingin á vegum Súlna. Á fundinum voru sleðar frá Súlum og Dalbjörgu og voru menn að skoða tækin og ræða hvað mætti fara betur og hvað menn þyrftu hugsanlega að laga hjá sér. Anton úr Súlum var með smá sprungubjörgunar kynningu þar sem hann kynnti fyrir okkur hinum nýja aðferð í sprungubjörgun. 
Æfingin hjá Súlum verður haldin næstu helgi eða laugardaginn 6 mars.  Þeir sem hafa áhuga á að keyra um nágreni Akureyrar með hinum sveitunum hafa samband við Skafta B Umsjónarmann sleðaflokksinns.  


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning