Sleða ferð á sunnudaginn
Almennt - föstudagur 05.mars 2010 - Kári Brynjólfsson
Næstkomandi sunnudag 7. mars boðar
sleðaflokkur Súlna til sleðaferðar um nágrenni Akureyrar. Ferðin er ætluð fyrir sleðaflokka björgunarsveita á svæði 11 og
nágrennis.
Keyrt verður frá hitasveituskúrunum sem eru við ruslahaugana ofan Akureyrar. Farið verður um Glerárdal og þar í kring. Ekki þarf að
skrá sig sérstaklega í ferðina en mæting er klukkan 10:00 og munu Smári Sig og Maggi Arnars leiða hópinn.
Veðurspáin er góð, hæg vestanátt og hálfskýjað.
Þeir sem hug hafa á að fara í ferðina skulu fylgjast með síðunni seinnipart á laugardag því breyting getur orðið á
skipulagi ef veðurspáin breytist.
Með von um góða mætingu
Sleðaflokkur Súlna
(tekið af sulur.is)



