Sameining BSVD og BSVÁ
Almennt - þriðjudagur 10.nóvember 2009 - Pétur Skarphéðinsson
Í gærkvöldi á opnum félagafundi voru samþykkt drög að samkomulagi um að sameina Björgunarsveitina á Dalvík og Björgunarsveit
Árskógstrandar.
Var það samþykkt með 100% atkvæða og er það mikið ánægjuefni að þetta hafi gengið svona vel í gegn.
Svo seinna um kvöldið bársut þær fréttir að þessar tillögur voru einnig samþykktar hjá Björgunarsveitinni innfrá.
Mikil vinna hefur verið unnin í kringum þetta samkomulag og rétt er að geta að Dalvíkurbyggð hefur verið haldið með í aðkomunni að þessu, og hafa viðbrögð þar verið mjög jákvæð fyrir þessu. Stefnt er að því að klára sameininguna innan 14 daga. Nánar verður auglýst hvenær það verður.
Einnig munum við setja inn það plagg sem kynnt var í gær á félagafundinum við fyrsta tækifæri. Viljum við þakka fyrir góða mætingu í gærkvöld og málefnalegar umræður sem urðu í kringum þetta stóra mál. Nánar um sameininguna verður sett hér inná vefinn hið fyrsta.