Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Nýársferð


Fyrstu helgi þessa árs var farin vel heppnuð hálendisferð á bílum og sleðum sveitarinnar. 

Góð þátttaka var í ferðinni og almenn ánægja. Ákveðið hefur verið að stefna aftur á “Nýársferð” fyrstu helgina á komandi ári, þ.e. 2 – 3 janúar 2010. Veður og snjóalög ráða miklu um ferðatilhögun en stefnan er sett á hálendið og kemur grill og baðferð í Laugarfell sterklega til greina.

Búast má við að línur skýrist ekki endanlega fyren á milli jóla og nýrs þegar ljóst verður hvað aðstæður bjóða uppá. En dagsetningin er negld og því lítið mál að taka helgina frá, tilvalið er að lýsa yfir þátttöku sinni á spjallinu því sætafjöldi verður takmarkaður. Fyrstur kemur fyrstur fær (sæti) og hafa nú þegar nokkrir hausar boðað komu sína.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning