Mikið að gera í gær
Almennt - sunnudagur 08.janúar 2012 - Kári Brynjólfsson
Þegar hlýna tók í veðri fór að rigna inn um þök hjá fólki á Dalvíkinni og hafði björgunarsveitin í
nógu að snúast í gærmorgun.
Losa þurfti klaka og snjó af þremur húsum, en mis mikið hafði lekið inn hjá íbúendum.
Þegar líða tók á daginn var óskað eftir vélsleðum sveitarinnar inn á Reykjaheiði til þess að ná í
bilaða vélsleða, sóttist ferðin vel og voru menn að koma heim í myrkri með tvo sleða í eftirdragi.
Nú þegar þetta er skrifað er ASA 12m/s , rigning og 5°C. Ekki er útilokað að meðlimir sveitarinnar muni sjást uppá
þökum Dalvíkur í dag, miðað við annríki síðustu daga




