Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Landsæfing á svæði 7

Laugardaginn 17. september n.k. verður Landsæfing á sjó haldinn á Hunaflóa. Æfingin verður gerð út frá Skagaströnd og eru það sveitirnar á svæði 9 sem sjá um skipulagningu æfingarinnar undir forystu björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd.

Fjölbreytt verkefni verða fyrir allar tegundir hópa s.s. björgunarskip, harðbotnabáta og slöngubáta. Einnig verða sett upp fluglínutækjaverkefni og köfunarverkefni. Sveitir sem skrá sig í fluglínuverkefni þurfa að hafa sín fluglínutæki með sér.

Áætlað er að æfingin hefjist kl 7:30 og ljúki um kl. 17. Að loknum frágangi verður þátttakendum boðið í grillveislu. Aðstaða verður til sjósetningar úr krana og gisting verður í boðið fyrir þá sem þurfa.

Ekki má gleyma Landsæfingunni á landi.

Æfingin verður haldin á Vestfjörðum 8. október í umsjón sveita á svæði 7. Gert er ráð fyrir því að verkefni byrji um kl 8 á laugardegium. Áætlað er að æfingunni ljúki svo með sundi og grilli um kl 18.
Nú er bara um að gera að taka sig saman, drýfa sig og taka hressileg á því. 


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning