Síðasti dagurinn
Almennt - sunnudagur 10.júlí 2011 - Kári Brynjólfsson
Þá er landsmótinu lokið þetta skiftið, í gær laugardag voru haldnir björgunarleikar unglingadeilda þar sem keppt er í ýmsum
tíma þrautum og var mikil keppni á milli hópa.
Í dag sunnudag voru menn í óða önn að pakka niður tjöldum og keyra heim á leið. Allt fór mjög vel fram og voru menn
ánægðir með vel lukkað landsmót þegar haldið var heim á leið. Vill Björgunarsveitin Dalvík þakka öllum þeim sem
aðstoðuðu við mótið á einn eða anna hátt og ekki má gleyma fyritækjunum sem styrktu mótið með glæsibrag.



