Hefur þú áhuga ???
Hefur þú áhuga á að vinna í innra starfi sveitarinnar? Langar þér að taka þátt í daglegum rekstri og skipulagningu á félagsstarfi sem sveitin stendur fyrir eða hefuru alveg brennandi áhuga á að vinna í fjármálum eða öðrum bókhaldsverkefnum?
Ef svo er þá ættiru að hugsa um að gefa kost á þér að sitja í stjórn sveitarinnar. En það vantar a.m.k tvo nýja einstaklinga inn og svo er að sjálfsögðu öllum opið að bjóða sig fram til setu í stjórn. Kröfunar eru: brennandi áhugi á Björgunarsveitarstarfi er nauðsynlegur, og hæfileiki að geta unnið með öðrum í hinum ýmsu málum. Þetta er allt of sumt. Það er gefandi og ekki síður krefjandi að sinna stjórnarstörfum og fólk fær þá öðruvísi sýn á rekstur sveitarinnar sem og innra félagsstarf sem er í gangi.
Við viljum endilega hvetja þá sem hafa áhuga og tíma til að sinna svona hlutverki að bjóða sig fram og hafa samband við Hauk formann, og eiga við hann aðeins meira spjall um hvað þetta felst í sér.
Nánari upplýsingar gefur Haukur í síma 8984098



