Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Fiskidagurinn Mikli 2010

Jæja ágæta björgunarsveitarfólk.

Nú er stutt í að þessi stóri dagur renni upp og sjálfsögðu tekur sveitinn fullann þátt í honum eins og undanfarinn ár.


Verkefnin í ár eru mjög svipuð og í fyrra þ.a.s umferðar- og bílastæðastjórnun, gæsla á hátíðarsvæði, gæsla við tónleikasvið um kvöldið og að sjálfsögðu flottasta flugeldasýning sem sést hefur á Íslandi!! Eina breytingin er sú að bátarnir verða ekki mannaðir, heldur bundnir við bryggju klárir í slaginn ef eitthvað kemur uppá.

Okkur vantar mannskap í þessi verkefni og hvetjum við alla, sama á hvað aldri þeir eru og þeir eldri sérstaklega sem sjást orðið lítið út í húsi að skrá sig. Það verða 3 tveggja tíma vaktir yfir daginn og þurfum við alla þá hjálp sem við fáum.

Skráning fer fram á spjallinu eða hjá Himma 8681074 eða Friðjóni 8666128 og ef fólk vill nánari upplýsingar þá er bara að hringja

 

Óvæntur glaðningur fyrir fyrstu 13 sem skrá sig!!



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning