Æfing í Reykjavík
STÓRafmælisæfing
Flugbjörgunarsveitarinnar
í Reykjavík
þann 2. október 2010
Hvað þarftu að vita ?
Æfingin er haldin í tilefni 60 ára afmælis Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík og verður hvergi til sparað í að gera æfinguna krefjandi, skemmtilega og eftirminnilega fyrir þáttakendur.
Æfingin hefst að morgni laugardags og stendur í um 10 klst en að æfingu lokinni mun FBSR bjóða til veglegrar grillveislu í bækistöð félagsins.
Skráning fer fram strax á netfangið aefing@fbsr.is og þar má fá nánari upplýsingar.
Þann 15. september þarf að tilkynna um áætlaðan fjölda og tegundir björgunarmanna sem þarf svo að staðfesta endanlega þann 28. september.
Ýmsar skemmtilegar uppákomur verða á æfingunni sem munu reyna á getu, viðbragð og ekki síst gleði þátttakenda.
(þótt ótrúlegt megi virðast erum við orðin sextug)
Misstu ekki af stærstu og skemmtilegustu æfingu aldarinnar
Hvað: Hvenær: Hvar: Tími: Annað:
Afmælisæfing FBSR
2. október 2010
Höfuðborgarsvæði og nágrenni
Klukkan 07:00 eða svona cirka
Fjölbreytt verkefni fyrir allar tegundir björgunarmanna og meyja.
Sjóverkefni - Fjallaverkefni - Björgunarhundaverkefni - Rústabjörgun - Fyrsta hjálp - Bíla og hjólaverkefni - Köfun - Leitarverkefni -
Verkefni fyrir þig og mig



