Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

BSVD og BSVÁ sameinast.

Fullveldisdaginn 1. des. sl. var undirrtitaður samningur um sameiningu tveggja björgunarsveita í Dalvikurbyggð.  Björgunarsveitin Dalvík og Björgunarsveit  Árskógsstrandar sameinuðu  krafta sína svo úr verður stærri og öflugri sveit.  Hin nýja sveit sem mun  starfa undir merkjum Björgunarsveitar Dalvíkur,  er mjög vel búin tækjum, búnaði, með ölfugan mannskap og gott unglingastarf.
Við sama tækifæri var undirritaður samstarfssamningur milli  Björgunarsveitarinnar og sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar. Samningurinn er afar jákvæður fyrir báða aðila, sveitarfélagið styður fjárhagslega við bakið á sveitinni og sveitin vinnur  að ýmsum verkum og verkefnum fyrir sveitarfélagið.  Mikil ánægja ríkir með stuðning  sveitarfélagsins í garð Björgunarsveitarinnar

Bjartsýni og ánægja ríkti meðal fjölmargra gesta sem voru viðstaddir atburðina og nutu síðan ríkulegra veitinga að hætti kvennadeildarinnar á Dalvík.


Á myndunum má sjá formenn beggja sveita Björgvin Smára Jónsson og Hauk Gunnarsson innsigla samkomulagið og á hinni myndinni eru Haukur Gunnarsson  formaður nýrrar sveitar og Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri að undirrita samstarfsamninginn við Dalvíkurbyggð


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning