Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Dagur þrjú að kveldi komin

Dagurinn í dag byrjaði með svipuðu sniði og í gær, þegar krakkarnir voru ræstir árla morguns með miklum látum og hófust póstarnir kl 8:00.

Af ýmsu var að taka  t.d. bátaverkefni, fjallabjörgunarverkefni, skyndihjálpaverkefni og sig en alls eru 10 póstar. Í hádeginu var öllum boðið í grillaða hamborgara við sundlaugina sem foreldrar unglinganna frá Dalvík sáu um, héldu svo póstarnir áfram eftir matinn til kl 18:00.
Í kvöld fram á Húsabakka verða svo umsjónamannaleikar og reiptog þar sem unglingadeildirnar munu takast á.
(fleyri myndir má sjá á myndasíðunni)


Fjallabjörgunarpósturinn setja upp dobblun og læra hnúta


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning