Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Búnaðarkaup, Búnaðarkaup.....!!!

Jæja félagar ! núna eru uppi hugmyndir um að björgunarsveitin fjárfesti í fjallabjörgunarbúnaði fyrir nokkra aura sem unnið hefur verið sérstaklega við að skrapa saman síðustu misserin. Nokkrir félagar með sérstakann áhuga á fjallabjörgun og rústabjörgun hafa ákveðið að vera með í pöntuninni og kaupa um leið eitthvað af búnaði fyrir sig persónulega.

Fjallabjörgunarbúnaður er í raun mjög almennur búnaður sem nýtist okkur víða í starfi sveitarinnar. Fyrir utan að nýtast við allt klifur og fjallabrölt notum við búnaðinn sérstaklega mikið í rústabjörgun og við almenn störf, eins og snjómokstur af húsþökum og óveðursaðstoð uppi á húsum. Þess vegna viljum við bjóða öllum félögum sveitarinnar að vera með í pöntunninni, hvort sem þeir hafa áhuga á fjallabrölti og klifri eða ekki. Unnið er að því að gera kaupin sem hagstæðust en mun meiri líkur eru á góðum afslætti ef margir sameinast í einni stórri pöntun. 

Dæmi um búnað sem æskilegt / heppilegt er að einstaklingar eigi sjálfir:                           Hjálmur, sigbelti, 4-6 karabínur, 2 – 4 prússikbönd, sigtól (reverso / tala / átta), 10 metra þarfaspotti, 2-4 slingar / tape (brjóstbelti) o.fl.

Ætlunin er að hafa kynningarfund á næstunni þar sem við kynnum hugmyndina nánar og verðum með bæklinga yfir allan búnað. Þangað til er um að gera að finna hamarinn til að brjóta sparibaukinn fara svo á netið og skoða búnaðinn !!

http://www.petzl.com/en/outdoor

http://www.backcountry.com/store/cat/5/Climb.html

http://www.blackdiamondequipment.com/en-us/shop/climb

 

Kv nefndin.....

                                 


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning