Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Annríki

Nokkuð hefur verið um útköll hjá björgunarsveitinni í desember og nú á nýju ári.  Öll útköllin eru þess eðlis að vatn hefur lekið inn í hús nema eitt tilvik sem átti sér stað seinnipartinn í gær þar sem hengja féll af þaki og inn í stofu með miklum látum, hengjan braut einnig eldhúsgluggan í húsinu en náði þó ekki inn á gólf eins og í stofunni.
Á sama tíma var þrettánda flugeldasalan í fullum gangi og vinna við flugeldasýningu sem hefst í kvöld á túnunum við Húsabakka kl 20:30 einnig verður þrettándabrenna og kvennfélags konur munu bjóða uppá  heitt kakó og smákökur.
Hægt er að lesa um öll útköllin á síðunni hér til vinstri undir hlekknum"Útköll"


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning