Allt komið á fullt
Almennt - fimmtudagur 07.júlí 2011 - Kári Brynjólfsson
Nú er Landsmót Unglingadeilda komið á fullt skrið og byrjaði með látum
kl 07:00 í morgun þegar gestir á tjaldsvæðinu voru vaktir með stórum lúðri úr vörubíl, mótið var svo sett kl
08:00.
Landsþing unglinga gekk mjög vel og var þétt setið í nýja íþróttahúsi Dalvíkinga. Póstarnir byrjuðu svo
strax eftir hádegismat og var mikil gleði með þau skemmtilegu verkefni sem biðu krakkana.
Í kvöld er svo kvöldvaka fram á Húsabakka þar mun fara fram hópefli og umsjónamannaleikar, þar munu umsjónamenn deildanna takast
á í hinum ýmsu þrautum.
Eitt af verkefnunum í skyndihjálparpóstinum
Myndir frá deginum í dag munu koma á síðuna á morgun.



