Æfing með Landhelgisgæslunni
Almennt - fimmtudagur 01.október 2009 - Kári Brynjólfsson
Miðvikudaginn síðastliðin 30. september var haldin alþjóðleg æfing með landhelgisgæslunni frá Noregi og
Danmörku. Æfingin gekk út á að skemmtiferðaskip átti að hafa strandað á Kolbeinsey, og var 2000 manns saknað.
Um nóttina voru settir út tveir Björgunarbátar sem sveitirnar áttu að leita að, bæði úr lofti og
sjó. á æfngunni voru Nokkrir Aron Bátar frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, þrjú varðskip, nýja Dass 800 flugvélin sem
Landhelgisgæslan á og Þyrla frá gæslunni. Æfingunni var stjórnað frá Lögreglustöðinni á Akureyri og
Samhæfingarstöðinni Skógarhlíð.
Í æfingunni tóku þátt þrír félagar úr Björgunarsveitinni Dalvík sem voru í Dass 800
flugvélinni. Voru þeir á Útkíkkinu eins og það kallast, horfa í sjóinn og svipast um eftir björgunarbátunum sem gekk glimrandi
vel og fannst eftir ekki svo langan tíma eftir að vélin kom á slysstað.
Myndir frá æfingunni eru komnar inn á myndasíðuna.



