Björgunarsveitin á Dalvík

Björgunarsveitin á Dalvík

Fréttir

Sprungubjörgunaræfing


Síðasta laugardag fóru þrjár fjallageitur upp á Reykjaheiði og æfðu handtökin í sprungubjörgun. Veðrið var ekki sem verst smá snjókoma og lítill sem enginn vindur. Voru menn við æfingar allan daginn og vel smurðir af heimabökuðu brauði. 
nokkrar myndir má finna á myndasíðunni

Björgunarsveitin á Dalvík fær styrk frá Salka-Fiskmiðlun

Björgunarsveitini á Dalvík fékk styrk á aðalfundi Sölku-Fiskmiðlun að andvirði 400.000 kr og var styrkurinn veittur fyrir mjög gott æskulýðsstarf og nokkuð ljóst að þessi styrkur eflir æskulýðsstarf innan sveitarinnar enn frekar.

Björgunarsveitin á Dalvík þakkar Sölku-Fiskimiðlun fyrir þennan myndarlega styrk og vonumst við til þess að eiga gott samstarf í framtíðinni. 


Útkall F3 grænn

Rétt fyri kvöldmat var björgunarsveitin kölluð út vegna þakplattna sem  voru farnar að losna á húsi í eigu Samherja á Dalvík. Mikið SV rok er búið að vera á Dalvík í dag og þurftu menn að notast við spottaæfingar og lyftara til þess að tryggja mannskapinn á þakinu.  Allt gekk þó vel og slysalaust. 


Sleða ferð á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag 7. mars boðar sleðaflokkur Súlna til sleðaferðar um nágrenni Akureyrar. Ferðin er ætluð fyrir sleðaflokka björgunarsveita á svæði 11 og nágrennis.
Keyrt verður frá hitasveituskúrunum sem eru við ruslahaugana ofan Akureyrar. Farið verður um Glerárdal og þar í kring. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í ferðina en mæting er klukkan 10:00 og munu Smári Sig og Maggi Arnars leiða hópinn.
Veðurspáin er góð, hæg vestanátt og hálfskýjað.
Þeir sem hug hafa á að fara í ferðina skulu fylgjast með síðunni seinnipart á laugardag því breyting getur orðið á skipulagi ef veðurspáin breytist.
Með von um góða mætingu
Sleðaflokkur Súlna

(tekið af sulur.is)

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning