Flýtilyklar
Fréttir
13. mai bílar útaf
Almennt - sunnudagur 13.maí 2012 - Kári Brynjólfsson
Um miðjan dag var óskað eftir aðstoð frá Björgunarsveitinni á Dalvík, höfðu þá tveir bílar ekið útaf í
snjónum sem hefur komið síðasta sólahringinn. Annar bíllinn var við afleggjarann í Skíðadal og hinn var á Hrísamóunum,
vel gekk að ná bílunum upp en annan bílinn þurfti að draga til Dalvíkur.
Vorfagnaður BSVD.
Almennt - sunnudagur 13.maí 2012 - Kári Brynjólfsson
Vorfagnaður BSVD verður haldinn laugardaginn 19 maí í húsi BSVD og hefjast herlegheitin kl 18:00. Grill og með því. Böbbi sér um stjórnun á þessum gleðskap og mun vafalítið hrista eitthvað skemmtilegt fram úr erminni.
Þetta mun kosta 1000 kr á mann og um skráningu sér hinn fjallmyndarlegi Hilmir Freyr og hægt er að ná á honum í 8681074

Fjall myndarlegur Hilmir og stjórnandinn Böbbi
Nýjar myndir
Almennt - sunnudagur 15.apríl 2012 - Kári Brynjólfsson
Nýjar myndir komnar inn á myndasíðuna.

Dagur klár með rekuna!
Renningur á hálendið
Almennt - sunnudagur 15.apríl 2012 - Kári Brynjólfsson
Laugardaginn 14.apríl var farið á Nýja Hiluxnum í dagsferð á hálendið ásamt Dalbjörgu, farið var upp
Kerhólsöxlina sem er í Sölvadal í Eyjafirði.
Sólin lét sjá sig næstum allan tíman með smá snjó muggu inn á milli, ágætis snjór er á norðanverðu
hálendinu og flenni færi.
Keyrt var inn í Gæsavötn með viðkomu í Landakoti og Sandbúðum.
Myndir frá ferðinni koma inn á myndasíðuna á næstu dögum.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
Könnun
Engin könnun skráð



