Flýtilyklar
Fréttir
Björgunarsveitin á Dalvík fær styrk frá Salka-Fiskmiðlun
Almennt - sunnudagur 14.mars 2010 - Friðjón Árni Sigurvinsson
Björgunarsveitini á Dalvík fékk styrk á aðalfundi Sölku-Fiskmiðlun að andvirði 400.000 kr og var styrkurinn veittur fyrir mjög gott æskulýðsstarf og nokkuð ljóst að þessi styrkur eflir æskulýðsstarf innan sveitarinnar enn frekar.
Björgunarsveitin á Dalvík þakkar Sölku-Fiskimiðlun fyrir þennan myndarlega styrk og vonumst við til þess að eiga gott samstarf í framtíðinni.
Útkall F3 grænn
Almennt - laugardagur 06.mars 2010 - Kári Brynjólfsson
Rétt fyri kvöldmat var björgunarsveitin kölluð út vegna þakplattna sem voru farnar að losna á húsi í eigu Samherja á Dalvík. Mikið SV rok er búið að vera á Dalvík í dag og þurftu menn að notast við spottaæfingar og lyftara til þess að tryggja mannskapinn á þakinu. Allt gekk þó vel og slysalaust.
Sleða ferð á sunnudaginn
Almennt - föstudagur 05.mars 2010 - Kári Brynjólfsson
Næstkomandi sunnudag 7. mars boðar
sleðaflokkur Súlna til sleðaferðar um nágrenni Akureyrar. Ferðin er ætluð fyrir sleðaflokka björgunarsveita á svæði 11 og
nágrennis.
Keyrt verður frá hitasveituskúrunum sem eru við ruslahaugana ofan Akureyrar. Farið verður um Glerárdal og þar í kring. Ekki þarf að
skrá sig sérstaklega í ferðina en mæting er klukkan 10:00 og munu Smári Sig og Maggi Arnars leiða hópinn.
Veðurspáin er góð, hæg vestanátt og hálfskýjað.
Þeir sem hug hafa á að fara í ferðina skulu fylgjast með síðunni seinnipart á laugardag því breyting getur orðið á
skipulagi ef veðurspáin breytist.
Með von um góða mætingu
Sleðaflokkur Súlna
(tekið af sulur.is)
Sleðafundur
Almennt - mánudagur 01.mars 2010 - Kári Brynjólfsson
Í gær sunnudaginn 28 febrúar var haldin sleðafundur allra sleðaflokka á svæði 11. Tilgangur með fundinum var að
hitta aðra sleðamenn á svæðinu og kynnast betur. Ákveðið var að allar sveitir haldi æfingu fyrir hinar sveitirnar og verður fyrsta æfingin
á vegum Súlna. Á fundinum voru sleðar frá Súlum og Dalbjörgu og voru menn að skoða tækin og ræða hvað mætti fara betur og
hvað menn þyrftu hugsanlega að laga hjá sér. Anton úr Súlum var með smá sprungubjörgunar kynningu þar sem hann kynnti fyrir okkur
hinum nýja aðferð í sprungubjörgun.
Æfingin hjá Súlum verður haldin næstu helgi eða laugardaginn 6 mars. Þeir sem hafa áhuga á að keyra
um nágreni Akureyrar með hinum sveitunum hafa samband við Skafta B Umsjónarmann sleðaflokksinns.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni



